Welcome to my big world

10.10.2007 16:02:17 / kristinkj

Afmæli og íbúðakaup:)

Ég á afmæli í dag.... ég á afmæli í dag....

Vá hvað mér finst ég orðin gömul eikkað... alveg 23 ára og ég held að ég sé  meira að segja komin með eina nýja hrukku í tilefni dagsins... styttist óþfluga í the BIG 30 ekki nema 7 ár til stefnu í það sem er ekkert smá stuttur tími ég meina mér finst eins og það hafi verið í gær að ég var 16 ára að fara á ball í KA heimilinu um versló á skítamóral eða einhverja hljómsveit og vera á hálfgerðu ímyndunarfyllerí eftir 2 bjóra... vá hvað maður var flottur á því8)

Heirðu haldiði ekki að ég hafi verið að kaupa mér íbúð bara... fæ hana afhenti núna 1 nóvember hlakkar ekkert smá til að fá hana hún er ekkert smá sæt sko.... þetta er byggt 1998 ekki nema 9 ára gamalt sem telst nú frekar nýlegt sko... og allt mjög vel farið í henni... Er að springa hlakkar svo til sko:) Bið spennt að geta farið að innrétta hana og gera hana eftir mínu höfði... Þannig að það er um að gera að kíkja í heimsókn við tækifæri þegar ég verð flutt:)

 Svo er maður byrjaður í ræktinni á fullu alveg heavy gaman og er þvílíkt að fýla þetta sko... ætla að reyna að ná af mér nokkrum kílóum fyrir jól og vera í geggjuðu formi næsta sumar:D

 Jæja ætla að skella mér í búðina og kaupa fyrir ammæliskaffið í kvöld...

 LATER


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 23:10:11 / kristinkj

Vika í sumarfrí:)

vá ekki nema hálft ár síðan ég hef bloggað hér:) er nottla flutt norður aftur sem er BARA fínt er að vinna á alveg æðilegum leikskóla með frábæru starfsfólki og æðilegum börnum. Var einmitt að borða með stelpum af leikskólanum núna í kvöld og fórum á Greifann sem er nottla bara besti veitingarstaður í öllum heiminum... mmmmmmm er svo södd að ég gæti sprungið...

Núna 9. júlí þá eignaðist Berglind vinkona litla stelpu sem er bara æðisleg bara fallegust í heiminum og svo eignaðist Birna vinkona mína lítinn strák núna 11 og ég bíð bara spennt eftir að fá að sjá hann:) Innilega til hamingju með litlu krílin dúllurnar mínar:)

Svo er ég að fara í sumarfrí eftir viku eins og stendur í titlinum hlakkar ekkert smá til að komast í smá pásu það er semsagt lokað í 2 vikur í leiskólanum þannig að ég er í fríi á meðan og stefnan er að fara suður í nokkra daga í fríinu og kíkja á útsölur  og kíkja í nokkrar heimsóknir...  Væri samt svo til í að fara eikkað út...  Kíkja til sólarlanda eða bara til köpen í nokkra daga... á ekki einhver stóra ferðatösku sem ég get troðið mér í og farið frítt út í :) hehe

En já ég nenni eilla ekki að skrifa núna skrifa einhverntíman seinna en samt kanski ekki hálft ár þangað til eins og síðat á milli silly me:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 22:46:26 / kristinkj

Long time no blog

Vó hó hó... vá hvað það er langt síðan ég bloggaði hér... hef ekki bloggað alveg síðan á síðasta ári barasta... ég blogga yfirleitt bara á minnsirkus, finst það einhvernvegin miklu skemmtilegra dæmi sko.

Þá er að verða komið að því að ég er að fara flytja aftur á Akureyrina eins og þið öll vitið nú sjálfsagt alveg sko... hef ekkert verið að tilkynna það að ég sé að fara norður hef bara ekki nennt því, segi bara fólki það þegar ég hitti það eða tala við það8) Mig hlakkar ekkert smá til að fara norður, er komin með vinnu á litlun leikskóla og það verður örugglega bara gaman að vinna með börnum eða ég held það allaveganna. Fer norður á föstudaginn næsta þannig að það er nú ekki langur tími þangað til sko. Er búin að vera að pakka niður á fullu alveg..... allt að verða svo tómt hérna heima hjá mér og sófinn minn fer á morgun á flutningabíl þannig að þá verður allt alveg miklu tómlegra víííí:lol: Mamma er svo góð að hún ætlar að koma á fimtudagsmorguninn og hjálpa mér aðeins að klára að pakka og þrífa og svona með mér ekkert smá næs að fá smá hjálp.... Ég ætla bara að búa hjá mömmu og pabba til að byrja með safna pening og reyna kanski að kaupa mér íbúð bara eftir kanski ár eða eikkað það væri ekkert smá næs sko að eiga sína eigin íbúð í staðinn fyrir að vera að leigja einhversstaðar útí bæ og bara borga pening í einhverja íbúð sem maður á ekki einu sinni, alveg gjörsamlega að henda penginunum í ruslið fyrir einhvern stað til að sofa á.... :S Mér finst það allaveganna ekki mikill tilgangur í því sko.

Svo er það næsta frétt... ég er oriðin DÖKKHÆRÐ, er ekkert smá mikið að fýla það sko er svona súkkulaði brúnt alveg og þótt ég segi sjálf frá þá finst mér það alveg fara mér bara ágætlega sko... er líka orðið miklu styttra en það var en samt ekkert stutt en það er svona axlasítt. 8)

OMG eruði búin að sjá myndirnar af henni Britney Spears.... ?? Gellan er barasta orðin snoðuð, ekkert smá CRAZY. Reyndar hefur hún alveg höfuðlagið í að vera snoðuð en vá kommon  talandi um athyglissíki sko alveg róleg á því vinan... Aldrei fyrir mitt litla líf myndi ég snoða á mér hausinn sko Er sko of mikill töffari til þess8)

En nenni ekki að blogga meira núna... SÍJA

 

Kristín OUT


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 15:21:10 / kristinkj

33 Dagar til jóla

Vá ég er eiginlega bara byrjuð að hlakka til jólanna... fara norður og kanski komast smá á snjósleða og svona og svo auðvitað að borða yfir mig af góðum mat og fá pakka;) hehe... Vá ég var að fatta áðan að það eru bara 3 vikur í fyrsta prófið og ekki nema ein og hálf vika eftir af skólanum.....

Eitt sem ég er að pæla????? Ætlar þessi snjór ekki að fara???? Ég nenni ekki að hafa snjó Þegar ég vaknaði á sunnudaginn var barasta allt á kafi í snjó.... ég fór út eikkað rúmlega 11 og byrjaði að grafa bílinn minn upp hann var nánast á kafi dýpsti snjórinn sem ég var að labba í var uppfyrir hné.... ekkert smá crazy:!::!::!: Svo á ég ekki skóflu þannig að ég var að sparka snjónum og grafa með höndunum á fullu í um einn og hálfan tíma og kom alveg allt of seint í vinnuna. 8) Ég braut meira að segja kústinn minn við að reyna að lemja snjóinn í burtu með honum þannig að ég þarf að fara fjárfesta í nýjum kúst8| Sem er nú kanksi ekkert svo dýrt sko hehe....

En jæja ætla að drífa mig í vinnuna er að vinna 16 - 20 og svo heim að laga til8)

LATER

KrIsTíN


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 00:51:17 / kristinkj

40 dagar til jóla

Vá ég trú þessu ekki það eru 40 dagar til jóla, vá hvað það er stutt þangað til, ég er meira að segja búin að kaupa nokkrar jólagjafir á eilla bara eftir að ákveða hvaða vinum ég ætla að gefa og kaupa handa þeim,  og pælið í einu mamma er búin að búa til jólakort fyrir mig og ég á bara eftir að skrifa inní þau og senda þau af stað:lol: ég reyndar býst nú ekki við að gera það fyrr en bara einhvern tíman í desember þegar ég tek mér pásu frá því að læra fyrir prófin.........Shitturinn prófin mar.......... þau eru bara alveg að koma vá hvað tíminn líður fljótt.

Fór norður á fimtudaginn og kom aftur suður á sunnudaginn..... Á föstudaginn var bara dekur dagur hjá mér, fór í litun á Medúllu og svo í litun og plokkun á Jöru, á laugardaginn fór ég á djammið á Skímó ball ekkert smá gaman í gamla góða Sjallanum. Svo á Sunnudaginn vaknaði ég í verstu þynnku ever alveg ömurlegt og svo var keyrt  af stað norðu í þynkunni. Svo á mánudaginn fór ég til Heiðu í skólann og hún klippti á mér hárið og það er ekkert smá flott þótt ég segi sjálf frá allavegana er ég mjög sátt sko.

Og talandi um hana Heiðu............... Heiða átti afmæli á laugardaginn 11 nóv til hamingju með það elskan og velkomin í 20 OG hópinn:lol:8)

En jæja nenni ekki að hafa þetta lengra.

KRISTÍN


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 00:38:18 / kristinkj

Helgin

Þessi helgi var nú ekkert eikkað rosa merkileg sko.... ég var að vinna á laugardaginn og sunnudaginn og svo á laugardaginn fór ég að horfa á Völu vinkonu keppa í fitness og varð stelpan í 4 sæti í samanburðarfitness og svo í 2 sæti í módel fitness sem hún hefði nú reyndar átt að vinna sko allavegana var hún meira skorin en sú stelpa  sem vann... En alla vegana til hamingju með það elskan:D:haha:

Annars er allt crazy að frétta af mér ég er búin að vera gera fullt af verkefnum og ég er einmitt að fara skila einu núna á morgun og maður er alltaf jafn gáfaður með það geyma öll verkefni þangað til á seinusta degi þá fer maður að læra eins og mófó alveg vitlaus sko... svo er bara að styttast heldur betur í prófin ekki nema mánuður og svo er bara norðu um jólin vúhú,,,,, ég er meira að segja búin að kaupa nokkrar jólagjafir ekkert smá dugleg sko.....

En hvað er málið það er byrjað að snjóa og komin crazy hálka var að koma frá Birnu vinkonu. Við vorum bara að chilla að horfa á One Tree Hill og borða kína mat og ís mmmmm..... vá feitu feitu. En núna er ég byrjuð i megrun þetta gengur ekki ég ætla að hætta borða núna og reyna að koma sér í eikkað form fyrir jól. Svo maður geti verið í flottum jólakjól ég er nebbla búin að kaupa skóna á bara eftir að kaupa kjólinn en ég sá einn geggjaðann í kjól um daginn og ég er að pæla að fara kaupa hann núna á næstu dögum hann kostar eikkað um 9.000 sem er sat ekkert mikið fyrir kjól:D:haha:

En jæja ég er að pæla að fara koma mér í beddan............ vakna snemma á morgun til að fara og skipta um dekk á bílnum.

LATER my peeps:haha:8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 13:17:56 / kristinkj

23.10.2006

Hvað var gert um helgina?????? Veit ekki með ykkur en ég var að vinna alla helgina og svo á laugardaginn fór ég í smá party hjá einni stelpu í vinnunni og svo fórum við nirði bæ og shit hvað var mikið af fólki í bænum líka allir á airveifs(kann ekki að skrifa þetta) við fórum á Hressó og það var alveg stuð þar... Svo er ég eikkað að veikjast núna veit ekki hvort ég sé bara frá eftir kuldann niðrí bæ eða hvort etta sé eikker annar skítur........

Vá hvað mér leiðist að vera veik..... ég HATA að vera veik. Er bara hérna heima að chilla í of stórri flíspeysu og í ullarsokkum gegt næs.....

LATER

KrIsTíN


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 00:21:26 / kristinkj

19.10

Jæja þá er maður bara orðinn stór alveg 22 ára GÖMUL vá ég trúi þessu ekki... mér finst ég eiginlega bara vera 18 ennþá sko.....8) En nei nei maður verður nottla alltaf eldri og eldri:^)

En já ég var að breyt lúkkinu vitði um einhvern flottan haus sem ég get haft ég nebbla kann ekki að gera neitt svona sniðugt8| alveg glöuð í þessum málum....

Vá ég eilla bara veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna ég er barasta alveg tóm í hausnum bara nánast ekkert að gerast nema það bara sem ég er að berjast við að reyna að skrifa hérna.... oft pælt í því hvað maður eigi að skrifa hérna og oftast fer það í þennan dagbókur stíl kanksi maður ætti bara að fara gera svona eins og dagbókt Berts..... Hvernig væri það

En ég nenni bara ekki að skrifa eikkað meira

 

KRISTÍN


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 00:17:51 / kristinkj

10.10

10.október 2006

Ég á afmæli í dag....

ég á afmæli í dag....

ég á afmæli í daag..

ég á afmæli í dag

 

KrIsTíN

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 13:24:46 / kristinkj

5.10.2006

hæhæ

Vá hvað ég er ekki búin að vera dugleg í þessu blogg dóti... Ég verð að fara taka mig á í þessu... þetta gengur ekki.

En hann elsku besti bróðir minn átti afmæli núna 2. október og hann er orðinn 25 ára GAMALL.... alveg bara hálf fimmtugur.... hehehehe Annars ætti ég nú ekki að segja neitt mikið ég er alveg að verða 22 núna bara 10 þannig að það er eins gott að þið munið eftir mér og ég þygg alveg pakka sko:lol: hehe OG ég ætla að djamma í telefni dagsins á 14 okt ég læt ykkur bara vita með það8)

Svo er litli krúttí brumminn minn bilaður... það er verið að skipta um bremsuborða að aftan, bremsuklossa og bremsudiska að framan og svo er gat á einhverri bremsuslöngu sem er verið að laga líka þannig að ég er að fara verða blönk á eftir.... ansas vesen..... þetta er alltaf svona þegar maður á einhvern pening þá bilar alltaf bíllinn og maður þarf að fara borga einhvern helvítis helling. Maður ætti kanski bara að fara selja bílinn og kaupa sér hjól ....... hvernig væri það.... fara hrista spikið og koma sér í form og hætta að eiða peningum í eitthvað bílavesen.

En ég nenni ekki að skrifa neitt meira ég bara hef ekkert skemmtilegt að segja ég er of pirruð útaf bílnum.

LaTeR

KrIsTíN


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 12:57:20 / kristinkj

12.09.2006

Hæhæ hvað segir fólkið

Núna er skólinn byrjaður á fullu hjá mér og ég geri bara ekkert annað en að vera að vinna og í skólanum.... svona reyni að hitta stelpurnar þar á milli. Allt gott að frétta af mér ég fór út að borða á laugardaginn með vinnunni, fórum á Thorvaldsen bar, fengum alveg brjálað góðan kjúklingabringur jummy fengum mohito í fordrykk.... mmm .... ekkert smá gott líka og svo var svona súkkulaði kaka í eftirrétt sem er svona eiginlega hrá í miðjunni og ís með sem vara líka gott. Svo eftir það fór ég og Sóley í vinnunni minni aðeins niðri bæ, fórum á vegamót með kærastanum hennar og skemmtum okkur bara nokkuð vel sko.

En jæja svo er Rockstar Supernova alveg að klárast og er hann Magni OKKAR kominn í úrslit og er semsagt úrslitaþátturinn í kvöld og svo kemur í ljós hver vinnur á morgun og ég held að Toby hotty vinni..... Þoli ekki Lukas og allir halda að hann vinni en ég vona ekki hann er svo glataður!!!!

Vá annars veit ég ekkert hvað ég á blogga um... er eilla bara alveg tóm í hausnum. Ég er hérna heima bara að horfa á Shallow Hal á dvd og er að slappa af bara áður en ég fer að vinna klukkan 16:00 til 20:00 svo er ég að pæla að heira í Heiðu og gera kanski eitthvað með henni eftir vinnu.

En já ég nenni ekki að hafa þetta lengra.......

KrIsTíN


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 12:18:57 / kristinkj

Áfram Magni

Jæja þá er komið að því....

Annaðhvort dettur hann Magni okkar út núna eða að við Íslendingar tökum okkur saman og kjósum hann áfram.... Sögurnar segja nefnilega að það muni tveir detta út í þessum þætti vegna þess að þeir þarna úti ákváðu að stytta þáttaröðina um tvær vikur og það duttu tveir út um daginn og það er þá síðasi séns núna til að það detti tveir út því að ekki munu þeir gera það í næst síðasta þættinum það er of mikið drama.....

Svo er eitt annað sem ég verð að segja ykkur ég var að horfa á reality þáttinn á netinu og OMG drama drama.8|8) Það er þannig sko að hún Dilana var í síðasta þætti eitthvað að tala ílla um hina í þættinu og svo núna í þessum þætti fær hún svona brakedown og er alveg í klessu greyið svo situr hún eikkað út og er að tala vð Lukas og Magni labbar til þeirra þá sér Dilana myndavélarnar og kastar staupinu sínu í jörðina og það smallast og eitt glerbrot  skoppar af jörðinni og í hausinn á Magna og það fer að blæða úr honum:!::!: og úr því verður svaka drama og Dilana grátandi:cry: á fullu og svo eru víst búnar að vera alveg þvílíkar umræður um þetta á netinu og allir eru að tala um það þarna úti að Dilana eigi bara að detta út fyrir það að vera ekki að höndla álagið almennilega og allir vorkenna okkar manni Magna alveg svaka mikið:D:lol:....

En vá hvað ég er mikið nörd ég er veik hérna heima alveg að kafna úr hori og hálsbólgu með smá hita og sjónvarpið er dottið út í húsinu mínu:klikk: og ég hef ekkert betra að gera en að vera bara að nördast á netinu og finna mér eitthvað slúður,,,, ég meina hvað er betra en gott slúður þegar manni leiðist:D:haha: hehe svona er þetta bara hehehehehe.....

En Já mér finnst að allir eigi að kjósa Magna núna í kvöld annaðhvort að senda sms og síminn ætlar að lækka kostnaðinn úr 99 kr í 19 kr eða þá að fara rockstar.msn.com og kjósa þar en ég er með linkinn hérna neðar á síðunni fyrir ykkur og það má kjósa eins oft og maður vill þannig að um að gera og kjósa bara svona 10 sinnum hver og þá er vonandi Magni kominn áfram í kvöld:haha::D

En já ætla að fara og setja í eina þvottavél sé ykkur seinna

KrIsTíN


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 22:49:28 / kristinkj

Smá svona sumar loka blogg........

Vá hvað þetta sumar er búin að vera fljótt að líða.... Þetta er alveg glatað. Maður er bara ný búinn í skólanum og er byrjað að hlakka alveg þvílíkt til þess að slappa af og gera eitthvað skemmtilegt í sumar"fríinu" kíkja í útileigu eða fara til útlanda en svo verður ekkert af því og maður endar á því að vera bara að vinna á fullu eins og mófó :lol::haha:. Ég er reyndar búin að hafa það fínt í sumar.... er búin að skreppa nokkrum sinnum norður á Akureyri til mömmu og pabba í heimsókn sem er alltaf jafn næs:haha: hehe. Og er líka búin að ná nokkrum góðum djömmum inn á milli sem voru samt ekki það mörg, get örugglega talið þau á minna en öllum puttum.....

Talandi um djammið þá fór ég á djammið núna á Menningarnótt8), (sem ætti reyndar að kallast ómenningarnótt:D) ég fór með nokkrum krökkum í vinnunni og við skemmtum okkur ekkert smá vel, svo voru auðvitað einhver slagsmál eins og venjulega á djamminu og við horfðum á einn gaur vera barinn af fjórum öðrum gaurum sem var bara alveg hræðilegt og greyið strákurinn var fluttur meðvitundarlaus í burtu í sjúkrabíl alveg hræilegt sko.... En mér fanst það skrítnasta hvað margir stóðu bara og horfðu á, ég meina ég gæti ekki labbað inní slagsmál fimm stráka og stöðvað þau með einni hendi en þarna var alveg fullt af fólki og líka alveg slatti af stæðilegum karlmönnum sem hefðu alveg getað komið greyið gaurnum til hjálpar.8|:!:...

En Já tíminn líður hratt og skólinn alveg að byrja.... hlakkar bara mjög mikið til þess og er að pæla að kaupa mér kort í stúdentaræktina og byrja að hreyfa mig á fullu, ég meina kortið kostar nánast ekki neitt, heyrði um daginn að mánuðurinn kosti 1.000 krónur og árskortið kosti 6.000 krónur sem er bara ekki neitt. Þetta er reyndar engin háklassa rækt eins og Laugar en það eru samt nokkur tæki og er opin allan daginn maður getur farið snemma á morgnanna eða seint á kvöldin sem er mjög fínt fyrri skólafólk sem er einnig að vinna með skólanum eins og ég...:haha::D

En jæja er að pæla að hafa þetta ekki lengra núna...

KrIsTíN


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 00:52:23 / kristinkj

hæhæ

Hæhæ....

Vá hvað ég er búin að vera löt við þetta blogg, talvan mín búin að vera eitthvað klikkuð og hún er svo sein greyið. Er bara núna að Rockstar Supernova byrji..... ÁFRAM  Magi:!::!: vúhú, ég held að honum eigi bara efit að ganga vel í þessarri keppni, allavegana segi það núna, týpíst að hann detti þá út núna fyrst ég var að segja þetta hérna á netinu:haha: en vonandi samt ekki.

Það er ekkert smá skrítið að það sé kominn júlí,,, fattaði það bara um daginn og það er ekkert smá stutt að Kristín byrji í stjórnmálafræðinni:D sem þýðir samt ekki að ég sé að stefna á að fara á alþingi eikkað seinna meir..... en annars veit maður bara aldrei :haha::D:lol: Ekki nema rúmur mánuður í að skólinn byrji aftur, mig hlakkar svona bara ágætlega til, held að þetta veri bar nokkuð skemmtilegt sko.....

En jæja ég er að pæla að fara hátta mig og koma mér vel fyrir framan sjónvarpið, alveg að fara byrja þátturinn:haha: Þannig að ég segi bara aftir Áfram Magni. og Góða nótt þið hin.:haha:

Og endilega kommenta svo að ég viti hverjir eru að skoða8)

KrIsTíN


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 21:10:30 / kristinkj

blablabla

Hæhæ... soltið langt síðan maður hefur bloggað hérna..... Maður er bara búinn að vera að vinna á fullu og svona, og ekki haft mikinn tíma til að gera neitt annað, en það verður víst að vera þannig svona til að geta haldið lífi í sjálfum sér. Ég er samt alveg þvílíkt pirruð þessa dagana:^):evil:, eikkað helv. vesen með launin mín, þetta fólk í launadeildinni í vinnunni minni kann ekki að reikna og réttast væri að senda þetta fólk bara aftur í grunnskóla til að læra að plúsa saman 1 og 2 eða eikkað, skil ekki hvað það er svona flókið við það. Ég er ennþá að fresta því að fá mér tattoo sökum peningaleysis en það verður bara að bíða betri tíma eða þangað til þetta fólk sem kann ekki að reikna drullar sér aftur í grunnskóla til að læra að reikna!!!:!: Nema maður fari bara að fá sér einhverja aðra vinnu sem maður getur unnið með skólanum, held eiginlega bara að maður þurfi að fara gera það. Þannig að ef þið vitið um einhverjar vinnur sem eru vel borgaðar og ég væri fullkomin í þá megiði endilega bjalla á mig og láta mig vita, en þær vinnur sem koma ekki til greyna fyrir mig eru t.d. vinna í fiski og vinna á sjúkrahúsi,,,, ég myndi bara frekar fara á féló heldur en að vinna þannig skíta vinnu og fá útborgað minna þar en ég er að fá núna8)

Vá hvað mig langar samt að fara í sumarfrí núna og bara slappa af og gera ekki neitt nema kanski liggja í sólbaði og sötra bjór eða einhverja svipaða drykki..... Kanski maður geri það bara eitt sumarið að sleppa því að vinna hérna heima og kaupa bara miða aðra leið til spánar og vinna þar bara allt sumarið og koma svo bara svaka brúnn og sætur til baka einhverntíman um haustið með alveg mega feitan vísa reikning, en ég held samt að maður þurfi að fá sér vísa kort til þess að fá vísa reikning. hmmmmm

En já ég ætla að fara að gera eitthvað sniðugt af mér, skreppa í sturtu og fara svo að gera eitthvað sniðugt og hætta þessu tuði núna.

SJÁUMST


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3